Skip to Content

Skæruliða-matvæladreifing

Gerði mér ferð að Mæðrastyrksnefnd í dag með matvæli héðan og þaðan og hugðist bjóða fólki að nýta þau að vild. Securitas stóðu tvö fyrir utan og gættu að umferð. Ég spurði þau hvort ekki væri í lagi að skilja þetta eftir upp við vegg þar sem fólk hefði að því aðgang, þau báðu mig þá að spyrja leyfis hjá konunni í dyrunum.

Lært umkomuleysi

Um daginn var stefnt akandi á miðbæinn úr vesturbænum. Ókum Tjarnargötuna sem venjulega er greið leið en í þetta sinn virtist eitthvað um að vera í Tjarnarbíó og fólk lagt bílum sínum langs eftir allri götunni þannig að hún var nú orðin einbreið. Samt voru þrír bílar aðsteðjandi úr miðbæjarátt og við vorum sömuleiðis þriðji bíll úr tjarnarátt móts við innkeyrsluna að bílastæðunum undir ráðhúsinu.

Sweet Dreams Are Made of This

Vá, ég vaknaði með Marilyn kallinn Manson á heilanum í morgun í fyrsta skipti í heilan áratug. Reyndar ekki hans eigið lag, cover af algjörlega óþolandi Eurythmics lagi sem honum tókst að gefa dimmt og pervertískt yfirbragð sem lífgar svoldið uppá það.

Ástæða þess að þetta glumdi í hausnum á mér þegar ég vaknaði var draumurinn sem ég vaknaði uppfrá, sem jafnframt gerði nær ómögulegt fyrir mig að vilja framúr og feisa raunveruleikann.

Lömbin halda kjafti

Venjulega sér maður íslenska fjölmiðla hampa hátt upp til skýjanna öllu því sem frá þessu skeri við búum hröklast og nær áhuga einhverra í fjarlægri lendum. Engu gildir hvað um er að ræða, né hvert almenningsálitið á því er.
Svo lengi sem það er hægt að troða ónefninu "ísland" inní umfjöllun um velgengni, frægð eða athygli af öðrum toga sem viðkomandi hlutur eða lífvera nýtur víðsfjarri eyjunni svonefndu, og tryggja að erlendu kollegarnir geri slíkt hið sama, þá er það gert.

Brennið þið kyrkjur krosslafs draugs

Þá er víst búið að upplýsa hver stóðu á bak við áramótabrennuna í Krýsuvík, sem fjarlægði einn stærsta skammarpunkt svæðisins á sama tíma. Þar á ég við hina margbölvuðu Krýsuvíkurkyrkju, sem líkt og aðrar slíkar byggingar eru ekkert nema rándýr eldiviður sem hefur verið rændur sínum sanna tilgangi til að nýta sem reðurtákn fyrir undirokun, karlaveldi og, miðað við uppljóstranir undanfarinna ára, barnanauðganir.
Líður þá ekki að löngu áður en einhver fjölmiðill mun nafngreina þessa einstaklinga, sennilegast DV miðað við gefna reynslu, og má þá vona að þau verði heiðruð gjörningnum samkvæmt.

Rvk-9 Málið er Vísir að Því er Koma Skal

Enn ein fyrirtakan í máli nímenninganna sem ákærð eru í því svokallaða RVK9 máli fór fram fyrir viku síðan. Ég hef varla tölu á því lengur hversu margar þær eru orðan, og enn erum við bara að fara yfir kröfur eins verjandans um frávísun málsins og vissra málsaðilla, sökum rugls og vanhæfni. En eitthvað skrið er að færast á gang mála, þessi fyrirtaka var sú önnur á jafnmörgum vikum.

Hjakkað í sama farinu

Enn á ný stendur kirkjan í ströngu á öldum ljósvakanna, úrsagnir úr þjóðkirkjunni hrannast upp og almenn umræða og bréfaskriftir í blöðum um aðskilnað ríkis og kirkju hefur vind í öllum seglum. En hversu lengi mun líða í þetta sinn áður en umræðan fjarar út, fjölmiðlarnir finna sér nýtt hræ að kjamsa á sem bloggheimar og umræðuplanið elta umsvifalaust og gleyma öllu um kirkjuna og hennar skipulögðu þráhyggju til svívirðilegra brota gegn almúgafólki allt frá upphafi stofnunarinnar fram til vorra daga...þar til næst.

Stjórnmál endurskilgreind

Í tilefni af lokun Austurvallar á 17. Júní:

Stjórnmál endurskilgreind sem athafnir innan samfélags.

Stjórnmál er að finna sameiginlega framlínu, lárétta framlínu sem er sett saman úr ólíkum hópum með ólíkar áherslur en sem geta fundið sín sameiginlegu markmið og unnið að þeim.

Reiði er fyrsta pólitíska tilfinningin.

Reiði er fyrsta pólitíska tilfinningin.

Reiði er mjög mikilvæg. Þrátt fyrir að reiðin hafi oft og af mörgum verið stimpluð neikvæð tilfinning þá er hún hin fyrsta pólitíska tilfinning. Oft er það reiðin sem fær fólk til að bregðast við. Reiðin er tilfinningin sem leiðir til hreyfingar, hún er sveiflan sem ýtir manneskjum af stað.

Keðjuverkun

Hjólaði í dag niður í Höfðatún þar sem Hreyfingin er með húsnæði. Þetta stóra hús hefur verið nýtt til fundahalda og sem skrifstofa en nú er hlutverk þess að víkka út.

Syndicate content