Skip to Content

siggi pönk's blog

Skæruliða-matvæladreifing

Gerði mér ferð að Mæðrastyrksnefnd í dag með matvæli héðan og þaðan og hugðist bjóða fólki að nýta þau að vild. Securitas stóðu tvö fyrir utan og gættu að umferð. Ég spurði þau hvort ekki væri í lagi að skilja þetta eftir upp við vegg þar sem fólk hefði að því aðgang, þau báðu mig þá að spyrja leyfis hjá konunni í dyrunum.

Lært umkomuleysi

Um daginn var stefnt akandi á miðbæinn úr vesturbænum. Ókum Tjarnargötuna sem venjulega er greið leið en í þetta sinn virtist eitthvað um að vera í Tjarnarbíó og fólk lagt bílum sínum langs eftir allri götunni þannig að hún var nú orðin einbreið. Samt voru þrír bílar aðsteðjandi úr miðbæjarátt og við vorum sömuleiðis þriðji bíll úr tjarnarátt móts við innkeyrsluna að bílastæðunum undir ráðhúsinu.

Stjórnmál endurskilgreind

Í tilefni af lokun Austurvallar á 17. Júní:

Stjórnmál endurskilgreind sem athafnir innan samfélags.

Stjórnmál er að finna sameiginlega framlínu, lárétta framlínu sem er sett saman úr ólíkum hópum með ólíkar áherslur en sem geta fundið sín sameiginlegu markmið og unnið að þeim.

Reiði er fyrsta pólitíska tilfinningin.

Reiði er fyrsta pólitíska tilfinningin.

Reiði er mjög mikilvæg. Þrátt fyrir að reiðin hafi oft og af mörgum verið stimpluð neikvæð tilfinning þá er hún hin fyrsta pólitíska tilfinning. Oft er það reiðin sem fær fólk til að bregðast við. Reiðin er tilfinningin sem leiðir til hreyfingar, hún er sveiflan sem ýtir manneskjum af stað.

Keðjuverkun

Hjólaði í dag niður í Höfðatún þar sem Hreyfingin er með húsnæði. Þetta stóra hús hefur verið nýtt til fundahalda og sem skrifstofa en nú er hlutverk þess að víkka út.

Á kaffihúsinu

Eitt af mínum verkefnum er frágangur þýðingar á klassísku anarkistariti; bókinni "At the Café - conversations on anarchism" eftir ítalska anarkistann Errico Malatesta. Hann byrjaði að skrifa bókina árið 1897, þegar hann var í felum, eftirlýstur af lögreglunni í borginni Ancona. Hann hafði þá rakað af sér sitt venjulega skegg og tók mikla áhættu þegar hann vandi komur sínar á kaffihús þar sem hann átti samræður við m.a. lögreglumann staðarins. Bókin er byggð á þeim samræðum sem hann átti á kaffihúsinu á þessu tímabili.

Born Against

Einusinni sem oftar ræddi ég um húðflúr við sambýliskonu mína.

Í þetta sinn sagði ég henni frá hugmynd minni um að láta flúra "BORN AGAINST" þvert yfir bringuna á mér. Hún spurði á móti hvort mér þætti það nú ekki helst til neikvætt? Þá benti ég henni á að ég væri nú á fimmtugsaldri en liði ekki enn eins og ég passaði inn í þann menningarhóp sem ég opinberlega tilheyri.

Borgaraleg Óhlýðni

Punktar úr framsögu minni á fundi hreyfingarinnar.

Óhlýðni við yfirvöld snýst um siðferðisvitund og hvað gerist þegar gengið er fram af henni. Kallað "borgaraleg" óhlýðni því hún beinist að og gegn yfirgangi opinberra einstaklinga og stofnana sem hafa völd. Óhlýðnin getur einnig beinst gegn tilteknum hefðum og venjum innan samfélags - sjá t.d. baráttu homma og lesbía fyrir tilverurétt.

-Held það sé tvennt sem margir átta sig ekki á - 1) að fólk almennt er siðferðilega meðvitað og 2) að óhlýðni er alveg eðlileg hegðun.

Í kirkjunni

Mætti í kirkju í dag.

Gerist ekki oft og þá yfirleitt vegna útfarar aldraðra ættingja en í þetta sinn vegna þess að mín eigin dóttir ákvað að fermast í kirkju. Hennar ákvörðun.

spjall við anarkista

B: "Þannig að þú kallar þig anarkista ... hvaða rök liggja að baki því?"

Syndicate content