Hjólaði í dag niður í Höfðatún þar sem Hreyfingin er með húsnæði. Þetta stóra hús hefur verið nýtt til fundahalda og sem skrifstofa en nú er hlutverk þess að víkka út.
Í kjallaranum hefur Keðjuverkun komið sér fyrir - DIY reiðhjólakollektív. Þeir sem standa að Keðjuverkun eru búnir að setja upp reiðhjólaverkstæði þar sem fólk getur komið og gert við eigin reiðhjól. Þeir eru einnig stöðugt að tína saman reiðhjól sem verið er að fleygja og finna varahluti í hjól. Síðan fara þeir yfir hjólin, athuga hvert vandamálið er og flokka eftir því. Rífa sum niður í aðra varahluti og tékka á þeim frekar.
Síðan geta áhugasamir sem vantar reiðhjól komið við, valið sér hjól úr safni þeirra sem búið er að bjarga frá því að vera grafin í jörðina og gert við sjálf/ir. Aðstandendur Keðjuverkunar veita ráðgjöf og aðstoð vænti ég en þetta er ekki þjónusta.
Hús Hreyfingarinnar gæti orðið meira multi-functional í framtíðinni því ég hyggst flytja bókasafn Andspyrnu og setja upp í kjallaranum. Safnið hefur legið í kössum í langan tíma núna, eða alla tíð síðan Hljómalind sagði leigusalanum sínum upp. Það er ómögulegt að láta róttækar bækur liggja í kössum þegar einhver hluti vors menningarhóps er forvitinn og vill lesa sér til um stjórnmál utan fulltrúalýðræðis og fjórflokka.
Fleiri anarkistar eru með plön fyrir rými hússins. Fylgist með í Höfðatúninu.