Skip to Content

Skæruliða-matvæladreifing

Gerði mér ferð að Mæðrastyrksnefnd í dag með matvæli héðan og þaðan og hugðist bjóða fólki að nýta þau að vild. Securitas stóðu tvö fyrir utan og gættu að umferð. Ég spurði þau hvort ekki væri í lagi að skilja þetta eftir upp við vegg þar sem fólk hefði að því aðgang, þau báðu mig þá að spyrja leyfis hjá konunni í dyrunum.

Ég sýndi henni ofan í mjólkurkexkassa frá Frón og spurði hvort ekki mætti dreifa þessu hér fyrir utan, hún bauð mér að koma bara með þetta inn en ég tók þá fram að kexið væri útrunnið (uppi varð fótur og fit einhverntímann vegna morgunkorns eða annars þurrmatar sem gefinn var eftir ætlaðan neysludag). Þá bannaði hún mér að dreifa þessu. "Ekki á okkar lóð" sagði hún.

Ég fór við svo búið. Ók upp að Fjölskylduhjálp Íslands, lagði varlega í íbúastæði þar sem lögreglumaður var önnum kafinn við að sekta alla bíla sem parkeruðu í götunni meðan fólk sem hefur ekki efni á matvælum náði í vikuskammtinn.

Var hálffeiminn, en herti upp hugann og laumaðist með lítinn kassa af óútrunnum flatkökum og skonsum upp að húsinu og lagði frá mér á jörðina nærri biðröðinni, sagði "gerið svo vel ef þið viljið" og fór aftur að bílnum. Löggan var enn upptekin við sektarmiðana en við hliðina á mér voru mæðgur búnar að leggja, önnur með barn á handleggnum. Ég sýndi þeim aftur í bílinn minn og þær tóku þessu framtaki fagnandi, sem og aðrir sem áttu leið hjá og kíktu í kassana mína. Hver tók eftir hentugleik.

Ég fór nokkrar ferðir í viðbót upp að húsi með kassa, hirti þá tómu aftur, lét lítið fyrir mér fara til að ég þyrfti ekki að fleygja þessum matvælum.

Löggan var farin, en stúlka sem stóð í kantinum og reykti sagði að hann hefði sagst muna koma aftur, hún hafði fengið sex þúsund króna sekt fyrir að leggja í vegkantinum og varaði aðra bílstjóra við.

Mér varð hugsað til manns sem ég er málkunnugur og ég hafði hitt fyrr um daginn. Hann átti þrjú þúsund eftir af bótunum, til að lifa af mánuðinn. Konan hans hafði einhverja vinnu en þar sem það er spænskukennsla sem valgrein fyrir nemendur, var búið að skera þá kennslu niður.

Vona að hann fái ekki sekt ... en hann á heldur ekki bíl. Bíllinn hans var tekinn af honum þar sem hann gat ekki borgað þá milljón sem hann kostaði, nú skuldar hann tvær komma sjö milljónir í bílnum sem hann á ekki lengur.

Athugasemdir

Houston Texans Hats is often

Houston Texans Hats is often employed on the wedding event, however they are one little bit of necklaces that may be worn to get It is certainly irreplaceable that will avoid taki entirely any occasion. Moreover, to suit one's dimension together with variety styles involved with Dallas Cowboys Hats, though taking into consideration the substance of the fact that studs in addition to posts are constructed of, porn star cheap Football nba jerseys available on the market could be very budget friendly. On the other hand, few of silver tiffany jewels can also be the kind of item that work well Green Bay Packers Hats flawlessly for the variety of special occasion. If you'd like to tailor for each and every of one's basic, plenty of Tiffany even offers gents expensive jewelry and yo suppliers provide particular Denver Broncos Hats that would match your bridal party specific folks. That is why, every different lovely lady happen to be fond of the great Detroit Lions Hats. It's no surprise that your manner simple methods of tiffany neck laces are best pers usually are most widely used internationally because it is What one is the most, there are several tiffany sa high quality in addition to trained workmanship.

Ah

Ah Þú gast litið í hring. Ég var þar sem sjálfsboðaliði með myndavél sjálfsagt.
Ekki sektuðu þeir allar jeppa eigendu á meðan Landsbanki var með veislu í laugardalshöllini. Samt gerður þeir það á meðan borgarrafundur gegn fátækt stóð.

Andrés sem tók þetta vídeó.
http://www.youtube.com/watch?v=Zdkb4isuu0Q